Nćturflug á kelluJosa
"úps fyrirgefðu, haltu þá bara áfram að sofa - ég sé þig á morgun" - hringdi í hann bróður minn klukkan 3 í nótt, vakti hann og áttum við einkar athyglisvert samtal, að vísu fremur stutt en athyglisvert engu að síður. Málið var það að hann er að fara til Noregs að hitta kærustuna og var ég - þessi ljúfa systir sem ég er - búin að bjóðast til að skutla honum á flugvöllinn. Ég fór því tilltölulega snemma að sofa í gær - Danni stillti klukkuna rúmlega 2 þar sem við Jói höfðum talað um að leggja af stað upp úr 3 og var ég með skipulagið alveg á hreinu áður en ég lagðist út af í draumaheiminn. Ég drattaðist svo reyndar ekki á fætur fyrr en korter í 3 og fór því næstum í buxurnar öfugar í hamagangnum, rétt mundi eftir bíllyklunum og þurfti svo að snúa við þegar ég var komin út á bílaplan - til að sækja gleraugun mín .. semsagt ekki alveg mitt móment. Ég keyrði svo á aðeins yfir löglegum hraða úr vesturbænum upp í breiðholt, frekar sweet engir bílar á ferli og flest öll ljósin loguðu græn. Þegar ég kom svo að húsinu sá ég hvergi ljós, leit á klukkuna jú jú, hún var rétt rúmlega 3 - ég var á réttum tíma. Hringdi í Jóa sem var lengi að svara og frekar skrítinn í röddinni þegar hann svaraði. Ég var voða róleg til að gera hann ekki stressaðan hvað við vorum að verða sein "hvað segirðu, ertu ekki tilbúinn - varstu sofandi?" - Jói tjáði mér að svo væri og að "flugið væri kl 6 í dag ekki í nótt"!!!Alltaf tekst mér ađ vekja kátínuJosa
Var í heimsókn í gærkvöldi og ákvað að taka með mér smá nammi þar sem ég á svolítið magn af því eftir allar þessar flugferðir mínar síðastliðin ár. Ég lét vita áður en ég kom að ég mundi koma með gos og smá nammi með mér og því þyrfti ekkert að hafa áhyggjur af mér (var ekki að drekka svona til tilbreytingar). Ég lét gestgjafann svo vita stuttu eftir komu mína að ég hefði bara tekið það sem ég hafði fundið hjá mér og ætti henni ekki að bregða þegar hún sæi hvað ég kom með. Hún hló bara og sagði að ég gæti nú ekki toppað vinnufélaga sinn sem hafði keypt bland í poka fyrir 1500 kr fyrr um daginn - en þá tók ég upp úr bónuspokanum 1474,2g af M&M 







