Brjóst, brjóst, brjóstJosa
Hvað skyldi mann dreyma þegar maður sefur umvafinn brjóstum?Gott málefni, er að spá í að leggja mitt af mörkum
Allir ţurfa víst sinn pappírJosa
Er að spá í að fara skrá hjá mér klósettferðirnar mínar - hve oft á dag, hvenær dagsins fer ég & hversu oft heyrist í pappírsrúllunni hjá nágrannanum þegar ég ætla að ná mér í pappír !!!!Þetta er mjög furðulegt, það var orðinn fastur liður áður en ég fór til Íslands í ágúst að ég heyrði skröltið í pappírsrúllustandinum þegar einhver hinum meginn við vegginn var að ná sér í pappír. Svo er þetta búið að gerast nokkrum sinnum síðan ég kom aftur & það eru komnir nýjir nágrannar

Hef ekki búið á stað áður þar sem að ég heyri í pappírsrúllunni (og btw þá er þetta það eina sem ég heyri frá þessari íbúð .. sem betur fer!!) en finnst þetta orðið svolítið meira en tilviljun.
Gæti verið að það séu ákveðnir tímar dagsins þegar allir þurfa að fara á klósettið???
Kannast einhver við að hafa verið að rúlla eftir pappír kl 20:03?
Heima sćta heimaJosa
Ég elska (danska) heimilið mitt !!! Það er bara einhver sjarmi yfir því að rölta heim úr búðinni klukkan fimm á miðvikudags eftirmiðdegi og finna bjórlyktina frá Ceres verksmiðjunni .. umm, hitar vel upp fyrir helgina
Það er ekki furða að það sé stanslaust partíhald hér í húsinu, fim, fös & lau .. lætin yfirgnæfa stundum sjónvarpið þegar ég reyni að horfa á Will & Grace með rakamaskann minn og lakka á mér táneglurnar - hvað get ég sagt, ég tek mitt heimasætu hlutverk mjög alvarlega
úff .. ţar skall hurđ nćrri hćlumJosa
Var að spjalla við vin á msn sem þakkaði mér fyrir síðast og kommentaði hvað ég var hress - ég þakkaði bara pent fyrir & "ekki sem verstur sjálfur" , skildi reyndar ekkert hvað hann var að fara þar sem ég er alltaf hress - en svo læddist sá grunur að mér að hann var ekki að tala um sama hitting & ég. Hvað þá?? .. á ég að spyrja hvenær hittumst við aftur síðast? .. með hverjum var ég?? .. hvar hittumst við?? .. & var ég full??Þar sem ég vil nú ekki vera að ýta undir kjaftasögur að ég sem verðandi sálfræðingur, eigi það til að ráða ekki við drykkjuna og verða ofurölvi, er ég ekki mikið að benda á akkilesarhælinn minn.
Ákvað nú samt að spyrja þar sem þetta er gamall vinur minn sem þekkir mig nokkuð vel & álítur það væntanlega ekki veikleikamerki að ég hafi etv verið það ölvuð að ég muni ekki eftir að hafa hitt hann á einhverri ölstofu bæjarins. " Í bænum" var svarið sem ég fékk & því fylgdi mjög grafísk dodomynd. Svo varð hann bara upptekinn og hafði ekki tíma til að svara fleiri smáatriðum um hvar ég hafði verið svona hress!!! .. hann þurfti að sökkva sér vinnu & skildi mig eftir með höfuðið fullt af spurningum um áfengisneyslu mína.
Veit að ég á það til að verða svolítið full, og gleyma hvað ég segi. En yfirleitt man ég eftir því sem ég geri og hvern ég hitti. Rámar stundum í að hafa hitt einhvern en þarf þá bara pínu hint til að muna. - Hvað er að gerast? - Af hverju man ég ekki eftir að hafa hitt hann í bænum?? Hvenær gæti þetta hafa verið? Og hvað var ég búin að drekka svona mikið svo ég muni ekki eftir að hafa hitt vin minn?
... Nei þetta hlýtur að vera vitleysa í honum, hann hefur eitthvað ruglast. Getur bara ekki verið að ég hafi hitt hann og muni ekki eftir því. Hann er kominn með kærustu sem ég hlakka til að hitta þannig að það getur ekki verið annað en að ég hafi verið spennt að hitta hann og horft mikið í kringum mig að leita að píunni - Nei ég er þess fullviss um að hann hefur rangt fyrir sér og ég rétt.
- & til að fagna því að enn og aftur slapp ég við snúruna ætla ég að fá mér eitt rauðvínsglas. Bíð svo bara róleg eftir því að hann átti sig á að sig hafi misminnt.







