Bedroom eyesJosa
Mér seinkaði aðeins í skólann í morgun þar sem ég festist í sjónvarpinu - Americas next Top Model með Tyru Banks.
Ég tel mig nú frekar strait en halló hvað gellan er flott!! Hún er með kynþokkafyllstu svefnherbergisaugu sem ég hef nokkurn tíma séð.
Ég er víst ekki ein um að finnast þetta, í einum að uppáhaldsþáttunum mínum Scrubs kom nafn hennar fyrir einmitt þegar ein frjósöm kona var að hita karlinn sinn upp til að fara fjölga mannkyninu - eitt nafn og karlinn kominn í stuð.
Frábær þáttur í alla staði en þessu er stolið ... ég notaði þetta fyrir 6 árum. Reyndar ekki í alveg í sama tilgangi, fjölgun var ekki á dagskránni, en æfingin er alltaf góð (blikk)







