Næturflug á kelluJosa

"úps fyrirgefðu, haltu þá bara áfram að sofa - ég sé þig á morgun" - hringdi í hann bróður minn klukkan 3 í nótt, vakti hann og áttum við einkar athyglisvert samtal, að vísu fremur stutt en athyglisvert engu að síður. Málið var það að hann er að fara til Noregs að hitta kærustuna og var ég - þessi ljúfa systir sem ég er - búin að bjóðast til að skutla honum á flugvöllinn. Ég fór því tilltölulega snemma að sofa í gær - Danni stillti klukkuna rúmlega 2 þar sem við Jói höfðum talað um að leggja af stað upp úr 3 og var ég með skipulagið alveg á hreinu áður en ég lagðist út af í draumaheiminn. Ég drattaðist svo reyndar ekki á fætur fyrr en korter í 3 og fór því næstum í buxurnar öfugar í hamagangnum, rétt mundi eftir bíllyklunum og þurfti svo að snúa við þegar ég var komin út á bílaplan - til að sækja gleraugun mín .. semsagt ekki alveg mitt móment. Ég keyrði svo á aðeins yfir löglegum hraða úr vesturbænum upp í breiðholt, frekar sweet engir bílar á ferli og flest öll ljósin loguðu græn. Þegar ég kom svo að húsinu sá ég hvergi ljós, leit á klukkuna jú jú, hún var rétt rúmlega 3 - ég var á réttum tíma. Hringdi í Jóa sem var lengi að svara og frekar skrítinn í röddinni þegar hann svaraði. Ég var voða róleg til að gera hann ekki stressaðan hvað við vorum að verða sein "hvað segirðu, ertu ekki tilbúinn - varstu sofandi?" - Jói tjáði mér að svo væri og að "flugið væri kl 6 í dag ekki í nótt"!!!

Athugasemdir

1
Mía skrifar:
Í fyrsta lagi - þú ert algjört met!
Í öðru lagi - vissi ekki að þú værir að blogga :)
I þriðja lagi - ég ætla ekki að láta þig skutla mér út á flugvöll EVER
28. september 2007 klukkan 13:52
2
Jósan sjálf skrifar:
Takk takk - nei einmitt, það gerðist líka eiginlega alveg óvart - hehe, nákv - held að ég sé voða lítið að bjóða mig fram í svona á næstunni (en e-n verður víst að sækja piltinn, ætla að double tjékka tímann áður en ég legg af stað til Keflavíkur um miðja nótt ;-) )
01. október 2007 klukkan 22:24
3
Edda Sif skrifar:
snilld....ahahhha....annars þá var þetta Jóa líka smá að kenna..hann átti að segja þér að koma "kl:15.00" en "kl: 3.00"...haha...þannig að þetta eru mjög skiljanlega mistök hjá þér Jósa mín;)
kv Edda
02. október 2007 klukkan 10:49
4
Heiða skrifar:
Algjör snilld!!
Meiri svona skemmtilegar sögur :)
14. október 2007 klukkan 12:44

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Leit

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Josa
  • Staður: Rvík
  • Atvinna: Sálfræðingur

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...