Ég missti .. meydóminnJosa
Ég man eftir því atviki þegar ég áttaði mig á að ég gat verið hnyttin og komið með skondin tilsvör .. já í raun þá man ég þegar ég uppgötvaði húmoristann í sjálfri mér. Atvikið er mjög skýrt í huga mér, aldurinn er óskýr en ég man ég var með skólatösku á bakinu og því ekki byrjuð í efri bekkjum grunnskóla. Tólf, þrettán ára að ég mundi giska .. a late bloomer in humor
(og það rímar). Við vinkonurnar vorum á leið í skólann og vorum að koma fyrir horn þegar mér finnst ég missa e-ð úr höndum mér og sný mér við um leið og ég segi "hey, ég missti" - þegar ég sný mér við uppgötva ég að ég hafði ekki verið með í höndum mér og því ekki getað verið að missa neitt. Var ekki ósvipað því þegar mann dreymir að maður haldi á e-u og svo er það bara farið. En eins og táningum er nú von og vísa þá gerir maður allt til að forðast það að líta út eins og kjáni og fá háðsglósur í kjölfarið, þannig að ég til að "bjarga andliti" var fljót að bæta við "meydóminn". Eins og hægt er að gera sér í hugarlund þá sló ég þokkaleg í gegn þarna .. missandi meydóminn bara svona í snjóinn á þriðjudagsmorgni á leiðinni í dönskutíma.
Little Miss ScatterbrainJosa
Ef ég ynni á McDonalds væri núna mynd af mér við afgreiðsluborðið "Starfsmaður mánaðarins" - í dag tókst mér sem lausráðnum starfsmanni að fara fram úr vonum atvinnurekanda minna. Það geta ekki allir "státað af því" að hafa mætt í vinnu þegar þess er ekki krafist & í raun engin ástæða fyrir mætingu. Ég mætti semsagt á snyrtistofuna í morgun tilbúin að fara vinna í dag, á morgun & jafnvel lau og mán - en það var bara smá misskilningur af minni hálfu, dagarnir sem ég á að vinna eru eftir mánuð
Að vera eða ekki vera .. fyndinnJosa
Það hafa eflaust margir heyrt mig segja frá því að ég og Danni minn erum í "keppni" um hvort okkar er fyndnara. Hann telur sig vera fyndnari en mig og ég tel mig fyndnari en hann, bæði reyndar sammála um að munurinn er ekki mikill en bæði jafn örugg um yfirburði okkar sjálfra. Ég hef verið nokkuð dugleg að deila hér mínum helstu mómentum og er því ekki úr vegi að deila smá af hans mómentum. Það var semsagt síðustu nótt, Danni hafði verið að djamma með vinnunni og var kominn heim um 11, og dauður fyrir 12 þegar ég kom heim frá foreldrum mínum. Ég reyndi með allri minni kænsku að vekja piltinn, þar sem hann bað um það þegar hann hringdi í mig rétt áður en hann drapst, en allt fór fyrir ekki - hann rumskaði ekki. Og ég meina ég kitlaði hann hér og þar og alls staðar, hristi & kyssti & reyndi meira að segja að hræða hann með að foreldrar mínir stæðu þarna hjá okkur, allt til að reyna fá e-r viðbrögð en nei hann bara svaf á sínu græna. Svo þegar ég var búin að gefa upp alla von á að spjalla við "fulla Danna", sem er btw næstum jafnfyndinn og ég
, þá hnerraði ég 2x frekar lágt (eins og mín er von&vísa) og hvað haldiði - "Guð hjálpi þér" heyrðist frá áfengisdauða kærastanum mínum
Næturflug á kelluJosa
"úps fyrirgefðu, haltu þá bara áfram að sofa - ég sé þig á morgun" - hringdi í hann bróður minn klukkan 3 í nótt, vakti hann og áttum við einkar athyglisvert samtal, að vísu fremur stutt en athyglisvert engu að síður. Málið var það að hann er að fara til Noregs að hitta kærustuna og var ég - þessi ljúfa systir sem ég er - búin að bjóðast til að skutla honum á flugvöllinn. Ég fór því tilltölulega snemma að sofa í gær - Danni stillti klukkuna rúmlega 2 þar sem við Jói höfðum talað um að leggja af stað upp úr 3 og var ég með skipulagið alveg á hreinu áður en ég lagðist út af í draumaheiminn. Ég drattaðist svo reyndar ekki á fætur fyrr en korter í 3 og fór því næstum í buxurnar öfugar í hamagangnum, rétt mundi eftir bíllyklunum og þurfti svo að snúa við þegar ég var komin út á bílaplan - til að sækja gleraugun mín .. semsagt ekki alveg mitt móment. Ég keyrði svo á aðeins yfir löglegum hraða úr vesturbænum upp í breiðholt, frekar sweet engir bílar á ferli og flest öll ljósin loguðu græn. Þegar ég kom svo að húsinu sá ég hvergi ljós, leit á klukkuna jú jú, hún var rétt rúmlega 3 - ég var á réttum tíma. Hringdi í Jóa sem var lengi að svara og frekar skrítinn í röddinni þegar hann svaraði. Ég var voða róleg til að gera hann ekki stressaðan hvað við vorum að verða sein "hvað segirðu, ertu ekki tilbúinn - varstu sofandi?" - Jói tjáði mér að svo væri og að "flugið væri kl 6 í dag ekki í nótt"!!!Alltaf tekst mér að vekja kátínuJosa
Var í heimsókn í gærkvöldi og ákvað að taka með mér smá nammi þar sem ég á svolítið magn af því eftir allar þessar flugferðir mínar síðastliðin ár. Ég lét vita áður en ég kom að ég mundi koma með gos og smá nammi með mér og því þyrfti ekkert að hafa áhyggjur af mér (var ekki að drekka svona til tilbreytingar). Ég lét gestgjafann svo vita stuttu eftir komu mína að ég hefði bara tekið það sem ég hafði fundið hjá mér og ætti henni ekki að bregða þegar hún sæi hvað ég kom með. Hún hló bara og sagði að ég gæti nú ekki toppað vinnufélaga sinn sem hafði keypt bland í poka fyrir 1500 kr fyrr um daginn - en þá tók ég upp úr bónuspokanum 1474,2g af M&M 
HmmJosa
Er það eðlilegt að eiga 3 mismunandi glær lökk?? - tók eftir því fyrir einskæra tilviljun að ég á 3 glær naglalökk frá Sally Hansen, en öll eru þau fyrir vandamálaneglur - Instant strengh, Miracle cure og Complete care. Örugglega allt mjög svipað, en Jósan sá sér e-a þörf fyrir að eiga þetta allt & langar jafnvel í fleiri .. sá eitt voða sætt í gær
.. þú hefur bara fríkkað aðeinsJosa
Já það er ekki hægt að segja annað en það er gaman af þessum gamlingjum. - Var í heimsókn hjá ömmu minni sem er farin að rugla svolítið en í kjölfar þess kemur hún með hvern gullmolann á fætur öðrum. Henni varð einmitt á orði að ég hefði nú bara fríkkað aðeins síðan hún sá mig síðast.- "Ekki vanþörf á" var að sjálfsögðu það fyrsta sem mér datt í hug en eftir nánari íhugun hefði ég átt að segja "lengi getur gott batnað"
Why are you interested in Russian lady?Josa
... segi það - hvað er ég að spá??Fékk þennan póst um helgina - Inga frá Moskvu sem er að leita sér að eiginmanni vildi vita af hverju ég hafi þennan áhuga á sér ..
Já mér er spurn
En í fréttum er þetta helst;
Er flutt heim til Íslands, er að koma mér fyrir hjá foreldrunum, í gamla herberginu mínu þar sem Jói bróðir er óhagganlegur úr gömlu íbúðinni "minni" í kjallaranum. Búslóðin mín kom í síðustu viku & brá fólkinu mínu svolítið þegar það sá hvað ég hef verið dugleg að sanka að mér dóti. - verður gaman að sjá hvernig þetta fer allt saman
Nokkrum dögum eftir að ég flutti heim var ferðinni heitið til London þar sem við systurnar vorum að fara á tónleika með George Michael, tvenna söngleiki & touristaskrall. Er nýkomin heim þaðan - útbitin & hugguleg. Furðulegur tími til að vera bitin af skordýrum.. en kláðinn er rosalegur og er ég því lögst í dópið.
Góðar stundir
Ísland !!Josa
Jæja þá er komið að því - flutningur til Íslands á morgunHlakka mikið til að hætta þessu flakki & koma mér almennilega fyrir á einum stað. Síðastliðin 2 ár hef ég verið á frekar miklu flakki - fyrsta árið mitt í Dk bjó ég fyrst í íbúð sem ég fékk lánaða í 2 vikur, svo var ég á svefnsófanum hjá Hildi & Hákoni þangað til ég fékk íbúð í Lisbjerg um miðjan september - þar bjó ég fyrir utan stutta heimsókn um jólin og svo 2 mánuði um sumarið 2005, þangað til í byrjun október 2005 - þá flutti ég á Herningvej-inn þar sem ég var í tæpa 3 mánuði áður en ég fór í praktík á Íslandi sem varði í 6 mánuði, og á þeim tíma bjó ég í gamla herberginu mínu hjá foreldrum mínum, ég kom svo aftur í huggulegu íbúðina á herningvej-inum í júní og júlí 2006 á meðan ég var að skrifa í specialnum. Svo "skrapp" ég heim í ágústmánuði á þessu ári & kom til baka í byrjun september, íbúðinni sögðum við svo upp um miðjan nóvember & frá því ég kom frá Köben hef ég fengið að vera á svefnsófanum hjá Hildi & Hákoni.
Núna sé ég fram á flakklaust líferni & hlakka ég mikið til
Þegar ég segi ég hér fyrir ofan meina ég oft ég og Edda, er strax orðin vön að tala bara um mig & hún búin að vera í burtu í 2 vikur .. ég ég ég!!
Annars skrifaði Edda fyrrverandi roomie ansi skemmtilegan póst um daginn um flutningana & að enginn þörf hefði verið fyrir skilnaðarlögfræðing
Fór í síðustu bæjarferðina í gær & fann loksins "kaffihúsið mitt" - hef aldrei átt mér mitt uppáhaldskaffihús eins og svo margir - hvorki hér né á Íslandi.
Fer pottþétt þangað þegar ég kem hingað í heimsókn.
Jæja ætla að hætta þessu blaðri - fara að undirbúa ferðatöskuna mína og veislumatinn með Hildi & Konna, hann ætlar að elda hamborgahrygg og við meðlætið .. nammi namm
"Svolítið eins og Mary"Josa
Jæja þá er ég byrjuð að pakka og undirbúa flutning á dótinu mínu til Íslands. Komnir 5 kassar og aðeins farið að sjást í gólfið
.. nei en í alvöru þá er enn mikið eftir - sem er merkilegt þar sem þegar ég flutti hingað fyrir rúmum 2 árum kom ég bara með eina ferðatösku - þessir 5 kassar plús eru sem sagt minn hluti af Danmörku, sem ég ætla að taka með mér.
Ég fór í útskrift til Hildar minnar á föstudagskvöldið og var svaka fjör - gleymdi mér aðeins í Singstar en ég má ekki komast í svona tæki .. fer alveg í minn eiginn heim. Ég fór með bleikan hatt þar sem það var hattaþema og vann verðlaun fyrir eftirminnilegasta hattinn !! - Enda er þetta svona ekta Mary hattur. Verðlaunin voru Anton Berg marsipan nammi og hefðu eins getað verið gull - ég var svo kát.
Í gær fórum við út að borða á Ítalíu og fékk ég mér forréttahlaðborðið og aðalrétt en eftir eina ferð á þetta frábæra forréttahlaðborð var ég svo södd að unghænubrjóstinu var að mestu leifað. Eftir matinn var ákveðið að fá sér einn kokteil svona í kveðjuskini - fyrir Eddu, ég fer örugglega aftur áður en ég fer. Var svo búin á því eftir matinn og kokteilinn að ég lá bara fyrir þegar heim var komið.
Góðar stundir







